| |
| |
Þorskastríðið 2010 er hafið.
Er þetta í þriðja skipti sem stríðið er haldið en árið 2008 sendu rúmlega 100 hljómsveitir inn efni og í fyrra voru hljómsveitirnar orðnar 135 talsins. Keppnin sem fer öll fram á netinu er þannig háttað að hljómsveitir senda inn minnst 2 lög og mest 4 lög. Opið er fyrir innsendingar á efni til 24.apríl og verður sigurvegarinn krýndur 30.apríl í beinni á Rás 2. Í verðlaun eru stúdíótímar til að taka upp og fullklára 3 lög, ársbirgðir af Þorskalýsi sem og að sigurvegaranum er flogið til Færeyja þar sem hann mun koma fram á G festival 15-17.júlí.
Í ár er aðeins tekið við lögum með íslenskum texta. Við hvetjum alla til að taka þátt og sérstaklega hvetjum við þá sem syngja á ensku til að prófa sig áfram með íslenskan texta og taka þátt. Annars eru reglurnar nánast þær sömu og áður, þ.e.a.s að lögin verða að vera frumsamin. Aldur og tónlistarstefna skipta ekki máli og tónlistmaður má hafa gefið út plötur áður.
Aðstandendur Þorskastríðsins 2010 eru Rás 2, Atlantic Airways og G Festival.
Smelltu hér til að senda inn Demó! |
|
|
|